Manchester United og Liverpool verða bæði í eldlínunni í ensku úrvalsdeildeinni í knattspyrnu í dag en þá lýkur 18. umferðinni.
Klukkan 14.15 mætast WBA og Manchester United. WBA er í næst neðsta sæti en með sigri kemst það upp úr fallsæti. United er í öðru sæti deildarinnar, heilum 14 stigum á eftir grönnum sínum í Mancheste City.
Klukkan 16.30 hefst leikur Bournemouth og Liverpool. Bournemouth er í 16. sæti deildarinnar en Liverpool er í 7. sæti og með sigri fer það upp í 4. sæti deildarinnar.