Mkhitaryan tilbúinn að fara til Inter

Henrikh Mkhitaryan.
Henrikh Mkhitaryan. AFP

Armeninn Henrikh Mkhitaryan er sagður hafa gefið grænt ljós á að fara frá Manchester United til ítalska liðsins Inter þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar.

Ítalska blaðið Corriere dello Sport greinir frá þessu en Mkhitaryan hefur verið úti í kuldanum hjá José Mourinho stjóra Manchester United og hefur ekki verið í leikmannahópi liðsins í undanförnum leikjum.

Forráðamenn Inter vinna hörðum höndum að því að fá Mkhitaryan til liðs við sig og hafa verið í sambandi við Mino Raiola, umboðsmann leikmannsins, en ekki liggur ljóst fyrir hvort um lánssamning verði að ræða eða  varanlegan samning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert