Vilja framlengja við Guardiola

Pep Guardiola.
Pep Guardiola. AFP

Forráðamenn Manchester City vinna nú að því að fá Spánverjann Pep Guardiola knattspyrnustjóra liðsins til að framlengja samning sinn við félagið.

Guardiola gerði þriggja ára samning við Manchester-liðið þegar hann tók við stjórastarfinu í fyrra og hann á þar með eitt og hálft ár eftir af samningi sínum.

Lið City hefur verið hreint út sagt magnað á tímabilinu. Liðið hefur unnið 16 leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni sem er met og er með 11 stiga forskot á granna sína í Manchester United þegar mótið er hálfnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert