Mourinho að framlengja

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

Reiknað er með því að José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, geri nýjan samning við félagið innan tíðar.

Sky Sports hefur heimildir fyrir þessu og að Portúgalinn muni gera nýjan samning sem gildir til ársins 2021 en hann er á sínu öðru tímabili með liðið.

Mourinho vísaði fréttum á bug fyrir nokkru síðan um að hann væri á förum frá félaginu eftir leiktíðina en hann sagði að fréttir sem birtust um það hefðu verið þvættingur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert