Chelsea kemur fótboltaheiminum í opna skjöldu

Peter Crouch fagnar.
Peter Crouch fagnar. AFP

Forráðamenn Englandsmeistara Chelsea í knattspyrnu hafa heldur betur stigið óvænt skref því meistararnir hafa sent fyrirspurn til Stoke um kaup á hinum hávaxna framherja Peter Crouch.

Það er Telegraph sem greindi frá þessu í kvöld, en næga athygli hafði vakið þær fyrirætlanir Chelsea að næla í Andy Carroll leikmann West Ham. Carroll er hins vegar meiddur og verður frá í mánuð, svo athyglin virðist komin á Crouch í leit að skotmarki inni í vítateig andstæðinga. Er Chelsea í leit að varamanni fyrir þá Alvaro Morata og Michy Batshuayi.

Crouch er orðinn 37 ára gamall en framlengdi samning sinn við Stoke um eitt ár í nóvember. Hann hefur skorað þrjú mörk í 18 leikjum í deildinni á tímabilinu, en hafði áður spilað með Tottenham, Aston Villa, Southampton, Liverpool og Portsmouth svo eitthvað sé nefnt. Þá á hann að baki 42 landsleiki fyrir England.

Hinn rúmlega tveggja metra hái Crouch komst í sögubækur ensku úrvalsdeildarinnar fyrr í vetur þegar hann kom inn á sem varamaður í 143. sinn. Enginn annar leikmaður í sögu deildarinnar hefur oft verið kallaður til af bekknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert