Liðsfélagi Alfreðs til Stoke

Paul Lambert, nýráðinn knattspyrnustjóri Stoke.
Paul Lambert, nýráðinn knattspyrnustjóri Stoke. AFP

Paul Lambert sem í vikunni var ráðinn nýr knattspyrnustjóri Stoke City er búinn að fá fyrsta leikmanninn.

Gríski landsliðsmaðurinn Kostas Stafylidis, liðsfélagi Alfreðs Finnbogasonar hjá þýska liðinu Augsburg, er kominn til Stoke að láni út leiktíðina.

Stafylidis er 24 ára gamall vinstri bakvörður sem hefur leikið með Augsburg frá árinu 2015. Hann þekkir aðeins til enska boltans en hann lék sem lánsmaður með Fulham í ensku B-deildinni tímabilið 2014-15. Hann á að baki 21 landsleik með Grikkjum og hefur í þeim skorað tvö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert