Sturridge á óskalista Newcastle

Daniel Sturridge.
Daniel Sturridge. AFP

Daniel Sturridge leikmaður Liverpool er einn þeirra framherja sem Newcastle vill fá til liðs við sig í janúarglugganum.

Sky Sports hefur heimildir fyrir þessu en Rafa Benítez, stjóri Newcastle, vill styrkja leikmannahóp sinn fyrir síðari hluta tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Sturridge hefur lítið komið við sögu hjá Liverpool enda hafa sóknarmenn liðsins, Sadio Mané, Roberto Firmini og Mohamed Salah, farið á kostum. Sturridge hefur einnig verið orðaður við ítalska liðið Inter Milan.

Newcastle er einnig með Danny Ings liðsfélaga Sturridge á óskalista sínum sem og Diafa Sakho framherja West Ham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert