Fernandinho framlengir við City

Fernandinho fagnar marki City.
Fernandinho fagnar marki City. AFP

Brasilíski miðjumaðurinn Fernandinho er búinn að framlengja samningi sínum við enska knattspyrnufélagið Manchester City um eitt ár og verður hann því hjá félaginu til ársins 2020 hið minnsta. 

Forráðamenn City og Fernandinho hafa verið í viðræðum í nokkra mánuði og loks komin lausn í málið. Leikmaðurinn kom til City árið 2013 frá Shakhtar Donetsk í Úkraínu fyrir 30 milljónir punda. Síðan þá hefur hann spilað 212 leiki í öllum keppnum. 

Hann hefur nú þegar leikið 30 leiki á yfirstandandi tímabili og þar af 23 í ensku úrvalsdeildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert