Birkir byrjar á miðjunni hjá Villa

Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason. Ljósmynd/twitter

Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er í byrjunarliði hjá Aston Villa sem mætir Barnsley í ensku B-deildinni í knattspyrnu. Birkir hefur leik á miðjunni en honum var hrósað á dögunum af stjóra sínum, Steve Bruce.

Birkir hefur undanfarið verið að nálgast byrjunarliðið hjá Aston Villa sem er í 5. sæti deildarinnar í umspilssæti um laust sæti í úrvalsdeildinni.

„Ég var mjög ánægður með hann. Ég vildi sjá hvort hann gæti spilað í þess­ari stöðu og hann gerði það vel. Ég var ánægður fyr­ir hans hönd því hlut­irn­ir hafa ekki gengið eins vel hjá hon­um og við vild­um frá því hann kom,“ sagði Bruce eftir 1:0 sigur Villa gegn Nott­ing­ham For­est en Birkir lék þá allan síðari hálfleikinn á miðjunni. 

Þá kemur það ekki mikið á óvart að Jón Daði Böðvarsson er í byrjunarliðinu hjá Reading gegn Brentford en hann skoraði þrennu í síðasta leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert