Allardyce vill halda Niasse

Oumar Niasse.
Oumar Niasse. AFP

Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Everton, segir ekki koma til greina að láta senegalska sóknarmanninn Oumar Niasse fara frá félaginu í janúarglugganum.

Líklegt þótti að Evertom myndi losa sig við Niasse þegar félagið gekk frá kaupum á tyrkneska landsliðsmanninum Cenk Tosun frá Besiktas fyrr í þessum mánuði en Allardyce hefur nú ákveðið að Senegalinn haldi kyrru fyrir á Goodison Park.

Niasse tryggði Everton jafntefli gegn WBA á laugardaginn en hann kom inná fyrir Tosun og jafnaði metin mínútu síðar. Hann hefur skorað 6 mörk í þeim 12 deildarleikjum sem hann hefur fengið að spreyta sig í og aðeins Wayne Rooney hefur skorað fleiri eða 10 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert