Allir leikmenn Liverpool nema bakvörðurinn Andrew Robertson fengu 5 í einkunn hjá Sky Sports fyrir frammistöðu sína í leiknum gegn Swansea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem botnliðið fagnaði sætum sigri.
Robertson fékk hæstu einkunn Liverpool eða 6. Markaskorarinn Alfie Mawson var valinn maður leiksins hjá Sky Sports en hann fékk 8 í einkunn eins og markvörðurinn Lukasz Fabianski.