Gríðarlega mikilvægur sigur

Lukasz Fabianski grípur boltann í leiknum gegn Liverpool í kvöld.
Lukasz Fabianski grípur boltann í leiknum gegn Liverpool í kvöld. AFP

Pólverjinn Lukas Fabianski átti svo sannarlega fínan leik á milli stanganna hjá Swansea í kvöld þegar liðið vann óvæntan 1:0 sigur gegn Liverpool á heimavelli sínum.

„Við urðum að vera með fulla einbeitingu í vörnina og með því var alltaf möguleiki. En við sátum ekki bara til baka og biðum eftir þeim. Það voru nokkur skipti sem við sóttum vel á þá. Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur og við söxuðum á liðin fyrir ofan okkur,“ sagði Fabianski en þegar liðin áttu við á Anfield á öðrum degi jóla vann Liverpool stórsigur, 5:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert