Kane og Pickford valdir þeir bestu

Harry Kane með viðurkenningu sína.
Harry Kane með viðurkenningu sína. Ljósmynd/thefa.com

Harry Kane, framherji enska landsliðsins og Tottenham, hefur verið útnefndur besti leikmaður enska landsliðsins fyrir árið 2017 af stuðningsmönnum enska landsliðsins.

Kane spilaði stórt hlutverk með enska landsliðinu sem tryggði sér sæti á HM í Rússlandi í haust en hann skoraði sjö mörk á árinu og þar af sigurmörk á móti Litháen og Slóveníu og jöfnunarmark á móti Skotum á síðustu mínútum leiksins.

Jordan Pickford, markvörður Everton, var valinn besti leikmaður U21 árs landsliðs Englendinga en liðið komst í undanúrslit á Evrópumótinu í Póllandi. Hann var valinn í A-landsliðið og lék sinn fyrsta leik með því gegn heimsmeisturum Þjóðverja í nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert