Dyche framlengdi við Burnley

Sean Dyche.
Sean Dyche. AFP

Sean Dyche, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Burnley sem landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson leikur með, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.

Dyche, sem hefur gert það gott með lið Burnley frá því hann tók við liðinu árið 2012, gerði fjögurra og hálfs árs samning og er nú bundinn félaginu til ársins 2022.

Eftir góða byrjun á tímabilinu hefur Burnley misst flugið síðustu vikurnar en liðið er í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert