Það er stórleikur á dagskrá á Englandi í kvöld þegar Arsenal og Chelsea mætast í síðari undanúrslitaleik sínum í enska deildabikarnum í knattspyrnu.
Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli. Henrikh Mkhitaryan, sem gekk í raðir Arsenal á dögunum, má ekki leika með liðinu í kvöld eftir að hafa áður tekið þátt með Manchester United.
Hjá Arsenal gætu þeir Aaron Ramsey og Nacho Monreal snúið aftur eftir meiðsli og veikindi, en hjá Chelsea eru þeir Cesc Fábregas og Alvaro Morata úr leik í kvöld. Andreas Christensen er hins vegar klár í slaginn.
Sigurliðið í kvöld mætir Manchester City í úrslitaleik í næsta mánuði.