Ekki refsað fyrir að stela leigubíl

Gareth Barry er einn þeirra sem stal leigubíl.
Gareth Barry er einn þeirra sem stal leigubíl. AFP

Þeir Gareth Barry, Jonny Evans, Jake Livermore og Boaz Myhill, nokkrir af reynslumestu leikmönnum enska knattspyrnuliðsins West Brom, eru sloppnir við refsingu frá lögreglunni í Barcelona, þrátt fyrir að þeir stálu leigubíl í borginni síðastliðinn fimmtudag.

Leikmenn liðsins voru þá í æfingaferð í Barcelona og að sögn lögreglunar í Barcelona skelltu fjórmenningarnir sér út á lífið, utan leyfilegs útivistartíma leikmanna. Þá var hins vegar allt lokað og að lokum tóku þeir leigubíl á veitingastað sem var opinn allan sólarhringinn.

Frá veitingastaðnum lá leiðin upp á hótel liðsins í sama bíl, en í þetta skiptið án bílstjórans. Lögreglan var kölluð á hótelið og bílstjórinn náði í bílinn kl. 8. Ekki voru til næg sönnunargögn gegn leikmönnunum og sleppa þeir því við ákæru fyrir atvikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert