Ospina ver markið í úrslitaleiknum

David Ospina.
David Ospina. AFP

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur staðfest að David Ospina muni verja mark liðsins í úrslitaleiknum gegn Manchester City í ensku deildabikarkeppninni sem fram fer á Wembley á sunnudaginn.

Ospina hefur spilað alla leiki Arsenal í deildabikarnum en Petr Cech er aðalmarkvörður Lundúnaliðsins. Miðjumaðurinn Aaron Ramsey er tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla en Mesut Özil, sem hefur átt við veikindi að stríða, ætti að verða klár í slaginn.

Hvorugur þeirra verður með Arsenal í síðari leiknum á móti sænska liðinu Östersund í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar sem verður á Emirates Stadium annað kvöld. Arsenal vann fyrri leikinn í síðustu viku, 3:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert