Stuðningsmennirnir særðu mig

Arnautovic hefur spilað vel að undanförnu.
Arnautovic hefur spilað vel að undanförnu. AFP

„Það særði mig að heyra stuðningsmenn blístra því þeir bjuggust við meira af mér," þetta segir Marko Arnautovic, leikmaður enska knattspyrnufélagsins West Ham, en hann byrjaði ekki sérlega vel hjá liðinu.

Austurríkismaðurinn skoraði ekki í fyrstu 13 leikjum sínum með West Ham. Stuðningsmenn félagsins voru ófeimnir við að láta óánægju sína í ljós, en hann skoraði svo sigurmarkið gegn Chelsea í desember. Í kjölfarið skoraði Arnautovic sjö mörk í ellefu leikjum.

„Nú er ég að spila fyrir liðið og stuðningsmennina því þeir borga mikið af peningum til að sjá okkur spila og auðvitað vilja þeir að við spilum vel. Ég hef alltaf átt gott samband við stuðningsmenn, hvar sem ég spila. Án stuðningsmanna er ég ekki neitt," sagði Arnautovic við Sky. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert