Fjögurra marka Salah hógvær

Mo Salah var sjóðheitur í dag.
Mo Salah var sjóðheitur í dag. AFP

Mo Salah skoraði fjögur mörk og lagði upp eitt til viðbótar í 5:0-sigri Liverpool á Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag. Salah er kominn með 36 mörk á leiktíðinni og hefur verið óstöðvandi. Þrátt fyrir það var Egyptinn hógvær í viðtali við BT-sjónvarpsstöðina strax eftir leik. 

„Ég vil þakka liðsfélögum mínum. Án þeirra væri ég ekki búinn að skora svona mikið. Við reynum að ná í þrjú stig í hverjum leik og ég reyni að skora til að hjálpa til við það. Það mikilvægasta eru stigin þrjú.“

Liverpool tapaði fyrir Manchester United í síðasta leik og var Salah ánægður með svar liðsins í dag. „Þetta var gott svar eftir síðasta leik. Þetta voru góð úrslit og við héldum hreinu,“ sagði Salah. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert