Mourinho alls ekki sáttur eftir sigurinn

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

„Frammistaðan var ekki góð. Úrslitin voru mun betri en frammistaðan,“ sagði José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, við enska fjölmiðla eftir 2:0-sigurinn á Brighton í átta liða úrslitum enska bikarsins í kvöld. 

„Við áttum skilið að vinna því við stjórnuðum leiknum, en við spiluðum ekki vel. Við spiluðum ekki eins og ég vildi eða lagði upp með. Ég ekki ánægður með hvernig við byggðum upp sóknirnar okkar, ég kenni öllum um.“

Hann segir sóknarmenn sína hafa verið hrædda um að taka hlaup og bjóða sig. 

„Ég kenni varnarmönnum um því þeir tóku auðveldar ákvarðanir með að gefa til hliðar en ekki fram og svo voru sóknarmennirnir of hræddir við að taka hlaup,“ sagði Mourinho. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert