Miklar hreinsanir eru fram undan hjá Manchester United en enskir fjölmiðlar tala um að allt að níu leikmenn gætu yfirgefið herbúðir félagsins í sumar.
Síðasta vika var erfið fyrir Manchester-liðið. Fyrst féll liðið út úr Meistaradeildinni og síðan hafði það betur gegn Brighton í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar þar sem José Mourinho, stjóri liðsins, gagnrýndi spilamennsku sinna manna eftir leikinn.
Luke Shaw, Matteo Darmian og Daley Blind munu pottþétt kveðja Old Trafford í sumar sem og þeir Marouane Fellaini og Micheal Carrick, sem leggur skóna á hilluna eftir tímabilið.
Ander Herrera, Anthony Martial, Juan Mata og Chris Smalling eru meðal þeirra leikmanna sem gætu einnig yfirgefið Manchester United en Mourinho ætlar að taka veskið upp í sumar og kaupa nokkra öfluga leikmenn til félagsins.