Clement að taka við Reading

Paul Clement.
Paul Clement. AFP

Paul Clement, fyrrverandi knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Swansea City, er taka við knattspyrnustjórastarfinu hjá enska B-deildarliðinu Reading, sem landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson leikur með.

Reading rak í gær Hollendinginn Jaap Stam úr starfi og greina enskir fjölmiðlar frá því að Clement, sem missti starf sitt hjá Swansea í desember, sé á heimleið frá Los Angeles þar sem hann hefur verið í fríi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert