Hundfúlir út í Emré Can

Emré Can.
Emré Can. AFP

Stuðningsmenn Liverpool eru mjög ósáttir með ummæli þýska miðjumannsins Emré Can sem hann lét falla í viðtali.

Can, sem hefur verið sterklega orðaður við Ítalíumeistara Juventus, sagði í viðtali við þýska blaðið Süddeutsche Zeitung að hann væri með þau gæði að geta spilað með mjög sterku liði á næstu leiktíð.

Þessi ummæli hafa fallið í grýttan jarðveg hjá stuðningsmönnum Liverpool og sumir ganga svo langt með því að segja að Þjóðverjinn eigi aldrei að spila meira með liðinu. Samningur hans við Liverpool rennur út í sumar.

Hér má sjá nokkrar twitter-færslur frá stuðningsmönnum Liverpool;

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert