Ungur stuðningsmaður Man. Utd vekur athygli

Paul Pogba er góður vinur Alex Nield.
Paul Pogba er góður vinur Alex Nield. AFP

Hinn 10 ára gamli Alex Nield er mikill stuðningsmaður Manchester United. Hann ferðast á alla leiki með pabba sínum og lætur sig ekki vanta á leiki með U18 ára liði félagsins. 

Alex litli fæddist með heilalömun og getur hann ekki gengið. Hann á erfitt með hefðbundnar hreyfingar og að tjá sig. Það stoppar hann hins vegar ekki í því að vera harður stuðningsmaður félagsins og er hann orðinn vinsæll á meðal leikmanna þess. 

Alex og pabbi hans ferðuðust m.a. til Spánar til að sjá leik Manchester United og Sevilla í Meistaradeild Evrópu fyrr á leiktíðinni. Eins og sjá má í myndbandinu fyrir neðan eru Juan Mata og Paul Pogba, leikmenn liðsins orðnir góðir vinir Alex. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert