Arteta kemur til greina í stað Wenger

Mikel Arteta (lengst til vinstri).
Mikel Arteta (lengst til vinstri). AFP

Ivan Gazidis, framkvæmdastjóri Arsenal, hefur trú á að Mikel Arteta sé maðurinn sem ætti að leysa Arsene Wenger af hólmi sem knattspyrnustjóri enska liðsins. Sky Sports greinir frá þessu í dag. 

Arteta er í þjálfarateymi Manchester City í dag, en hann hefur aldrei verið aðalþjálfari. Arteta var fyrirliði Arsenal um tíma og hefur hann lært mikið á því að vinna með Pep Guardiola hjá Manchester City. 

Gazaidis kallaði starfsfólk Arsenal á fund á Emirates-vellinum og sagði frá því hvernig leitin að nýjum knattspyrnustjóra færi fram. Luis Enrique og Diego Simeone eru á meðal margra sem hafa verið orðaðir við starfið.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert