Walcott tryggði Everton þrjú stig

Theo Walcott fagnar sigurmarkinu.
Theo Walcott fagnar sigurmarkinu. AFP

Everton hafði betur gegn Newcastle, 1:0, í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Theo Walcott skoraði sigurmarkið Everton á 51. mínútu.

Fyrri hálfleikurinn fer seint í sögubækurnar fyrir mikið skemmtanagildi og voru bæði lið varkár og sköpuðu lítið. Phil Jagielka fékk besta færi fyrri hálfleiks en hann var ekki nærri því að skora í fínu færi á fjærstönginni. 

Walcott skoraði hins vegar snemma í síðari hálfleik og var fátt um fína drætti eftir markið og 1:0-sigur Everton raunin. Everton fór upp í 45 stig og 8. sæti með sigrinum en Newcastle er í 10. sæti með 41 stig. 

Everton 1:0 Newcastle opna loka
90. mín. Idrissa Gueye (Everton) fær gult spjald
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert