Hegazi ekki refsað fyrir að slá Ings

Hegazi í baráttu við landa sinn, Mo Salah, í leiknum.
Hegazi í baráttu við landa sinn, Mo Salah, í leiknum. AFP

Ahmed Hegazi, varnarmanni West Brom, verður ekki refsað fyrir að slá til Danny Ings, framherja Liverpool, er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. 

Enska knattspyrnusambandið tók málið fyrir í dag og ákvað að kæra Egyptann ekki fyrir athæfið. Hegazi virkaði pirraður er þeir börðust um boltann og sló Ings í magann. 

Þriggja manna aganefnd knattspyrnusambandsins fór yfir atvikið og var ekki einróma um að leikmaðurinn hafi átt skilið rautt spjald og sleppur Hegazi því við kæru og bann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert