Landsliðsmaður Nígeríu í ensku deildina

Leon Balogun í leik með nígerska landsliðinu.
Leon Balogun í leik með nígerska landsliðinu. AFP

Nígerski landsliðsmaðurinn Leon Balogun skrifaði undir tveggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Brighton í dag. Balogun kemur á frjálsri sölu til félagsins frá Mainz, þar sem hann var samningslaus.

Balogun á 14 landsleiki að baki fyrir nígerska landsliðið og var hann mikilvægur hlekkur í liðinu sem tryggði sér sæti á HM í Rússlandi. Hann mun því væntanlega mæta Íslandi 22. júní í Volgograd. 

Balogun, sem er fæddur í Þýskalandi, spilaði með Hannover og Werder Bremen áður en hann fór til Mainz. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert