Hélt að hann væri 35-36 ára (myndskeið)

Mohamed Salah og Virgil van Dijk á æfingu á Anfield.
Mohamed Salah og Virgil van Dijk á æfingu á Anfield. AFP

Mohamed Salah, Egyptinn frábæri í liði Liverpool, segist ekki hafa vitað mikið um miðvörðinn Virgil van Dijk þegar Liverpool keypti hann fyrir metfé í byrjun ársins.

Báðir hafa þeir spilað virkilega vel hvor á sínum enda vallarins. Salah hefur raðað inn mörkunum fyrir Liverpool á leiktíðinni og endaði sem markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar og með tilkomu Van Dijk í hjarta varnarinnar efldist varnarleikurinn til mikilla muna.

„Ég þurfti að fara á Google til að athuga hvað hann væri gamall. Ég hélt að hann væri 35 eða 36 ára,“ sagði Salah og hló í spjalli við Dejan Lovren á sjónvarpsstöð Liverpool en Van Dijk er 26 ára.

„Ef ég á að vera alveg heiðarlegur þá er Van Dijk frábær leikmaður og frábær persóna. Ég er mjög ánægður með að hafa fengið hann til okkar og séð hann spila,“ segir Salah en spjall hans og Lovren má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert