McIlroy heldur með erkióvinunum

Rory McIlroy.
Rory McIlroy. AFP

N-írski kylfingurinn Rory McIlroy, gallharður stuðningsmaður Manchester United, vonar að Liverpool landi sínum sjötta Evrópumeistaratitli í Kænugarði á laugardagskvöldið en þá mætir liðið ríkjandi Evrópumeisturum Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

„Eins mikill stuðningsmaður Manchester United og ég er, og stuðningsmenn United margir hverjir hata Liverpool, þá yrði frábært að sjá breskt lið vinna og vonandi gerist það. Það er frábært að breskt lið sé í úrslitum og ef Liverpool getur byrjað leikinn eins og það gerði í fyrri leiknum á móti Roma þá á Liverpool góða möguleika,“ segir McIlroy við AFP fréttastofuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert