Það stefnir allt í það að Manchester United gangi frá fyrstu kaupunum á þessu sumri á næstunni.
Staðarblaðið Manchester Evening News greinir frá því að Manchester United gangi væntanlega frá kaupum á brasilíska landsliðsmanninum Fred í byrjun næsta mánaðar frá úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk og er talið að kaupverðið sé um 53 milljónir punda sem jafngildir um 7,5 milljörðum íslenskra króna. Fred hefur leikið með Shakhtar Donetsk frá árinu 2013.
Fred, sem er 25 ára gamall, var valinn í 23 manna landsliðshóp Brasilíu sem leikur á HM í sumar. Hann spilar vináttuleik með Brasilíumönnum gegn Króötum á Anfield í byrjun júní og er reiknað með því að leikmaðurinn gangist undir læknisskoðun hjá United í leiðinni.