Juninho Bacuna til Huddersfield

Juninho Bacuna skrifaði undir þriggja ára samning við Huddersfield í …
Juninho Bacuna skrifaði undir þriggja ára samning við Huddersfield í dag. Ljósmynd/@htafcdotcom

Juninho Bacuna er genginn til liðs við enska knattspyrnufélagið Hudderfield Town. Bacuna kemur til Huddersfield frá hollenska félaginu FC Groningen. Hann skrifar undir þriggja ára samning við enska félagið en kaupverðið er ekki gefið upp.

Bacuna er 20 ára gamall miðjumaður og hefur spilað með Groningen frá árinu 2015 en hann á að baki 80 leiki í hollensku úrvalsdeildinni. Hann byrjaði 28 leiki fyrir hollenska liðið á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði eitt mark og lagði upp önnur fjögur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert