Vilja 50 milljónir punda fyrir Boateng

Jérôme Boateng er lykilmaður í þýska landsliðinu.
Jérôme Boateng er lykilmaður í þýska landsliðinu. AFP

Þýska knattspyrnufélagið Bayern München vill fá 50 milljónir punda fyrir þýska varnarmanninn Jérôme Boateng en það er Manchester Evening News sem greinir frá þessu. Boateng hefur verið orðaður við brottför frá félaginu í sumar en hann er orðinn 29 ára gamall. Boateng hefur verið orðaður við enska knattspyrnufélagið Manchester United að undanförnu en José Mourinho, stjóri liðsins, vill styrkja varnarleikinn hjá sér í sumar.

Boateng þekkir til á Englandi en hann spilaði með Manchester City tímabilið 2010-2011. Hann hefur verið mikið meiddur undanfarin ár en þegar hann er heill er hann af mörgum talinn einn besti miðvörðurinn í Evrópu í dag. Hann spilaði 19 leiki með Bayern München í þýsku 1. deildinni á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði eitt mark og lagði upp önnur tvö.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert