Chelsea skoðar Cech og Schmeichel

Kasper Schmeichel.
Kasper Schmeichel. AFP

Chelsea gæti reynt að fá markvörðinn Petr Cech aftur til liðsins fari svo að Thibaut Courtois verði seldur til Real Madrid í sumar en félagið hefur einnig áhuga á Kasper Schmeichel, markverði Leicester.

Courtois hirti markmannsstöðuna á Stamford Bridge af Cech á sínum tíma og hefur Belginn staðið milli stanganna hjá Chelsea undanfarin fjögur tímabil. Cech var seldur til Arsenal sumarið 2015 og hefur hann verið aðalmarkvörður þar síðustu þrjú tímabilin.

Fjölmiðlar erlendis telja að Real Madrid hafi boðið um 50 milljónir punda í Courtois sem á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum og talinn vilja róa á önnur mið.

Maurizio Sarri, nýráðinn knattspyrnustjóri Chelsea, vill ólmur leysa þetta mál sem fyrst en hvort hann sækist eftir liðsstyrk frá gamalli Chelsea-kempu eða Schmeichel sem varð Englandsmeistari með Leicester á sínum tíma er enn óvíst.

Petr Cech.
Petr Cech. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert