Tottenham fylgist vel með Grealish

Jack Grealish spilar líklegast í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Jack Grealish spilar líklegast í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. AFP

Ensku knattspyrnufélögin Aston Villa og Tottenham eru í viðræðum um kaupverð síðarnefnda félagsins á Jack Grealish, sóknarmanni Aston Villa. 

Fjárhagsstaða Aston Villa er ekki góð og neyðist félagið til að selja nokkra af sínum bestu leikmönnum eftir að liðinu mistókst að fara upp um deild. Villa vill fá á milli 30 og 40 milljónir punda fyrir leikmanninn sem spilaði afar vel á síðustu leiktíð. 

Grealish spilaði 30 leiki fyrir Villa á síðustu leiktíð og skoraði þrjú mörk ásamt því að leggja upp ófá til viðbótar. Aston Villa fór alla leið í úrslitaleik umspils B-deildarinnar um að fara upp um deild en tapaði á móti Fulham. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert