Franski knattspyrnumaðurinn Anthony Martial hefur nokkuð verið orðaður við brottför frá Manchester United og sagður vilja yfirgefa herbúðir félagsins. Lundúnalið Chelsea er sagt eitt þeirra sem hefur mikinn áhuga á kappanum.
Martial hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði United síðan José Mourinho tók við stjórnartaumunum á Old Trafford sumarið 2016. Maurizio Sarri, nýráðinn knattspyrnustjóri Chelsea, er að reyna byggja nýtt lið á Stamford Brige og gæti franski sóknarmaðurinn verið að færa sig um set á Englandi samkvæmt Sky Sports.
Chelsea hefur þó ekki gert formlegt tilboð í leikmanninn sem er með United í æfingaferð um Bandaríkin þessa daganna. Þýsku stórliðin Bayern Munchen og Dortmund eru einnig sögð fylgjast áhugasöm með gangi mála.
José Mourinho, knattspyrnustjóri United, er ekki talinn vilja standa í vegi fyrir brottför Martial en ætlar þó ekki að selja hann nema Frakkinn fari sérstaklega fram á félagsskipti.