Guardiola verður í áhorfendastúkunni

Pep Guardiola.
Pep Guardiola. AFP

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, verður ekki á hliðarlínunni á morgun þegar City tekur á móti franska liðinu Lyon í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Guardiola þarf að fylgjast með sínum mönnum úr áhorfendastúkunni en hann tekur út bann vegna óprúðmannlegrar framkomu í leiknum á móti Liverpool í undanúrslitum í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð.

Það kemur því í hlut Mikel Arteta, aðstoðarmanns Guardiola, að stýra City-liðinu frá varamannabekknum annað kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert