Agüero framlengdi við City

Sergio Agüero.
Sergio Agüero. AFP

Argentínski sóknarmaðurinn Sergio Agüero framlengdi í morgun samning sinn við Englandsmeistara Manchester City.

Agüero, sem er markahæsti leikmaðurinn í sögu Manchester City, framlengdi samning sinn við félagið um eitt ár og er nú samningsbundinn því út tímabilið 2021.

„Ég er ánægður að hafa framlengt samninginn um eitt ár. Mín hugmynd var að vera hjá félaginu í tíu ár. Ég er búinn að vera hér í sjö ár svo það verða tíu ár þegar samningur minn rennur út,“ segir Agüero á vef Manchester City.

Agüero er 30 ára gamall og hefur skorað 204 mörk fyrir City en hann kom til þess frá spænska liðinu Atlético Madrid árið 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert