Tveir í banni hjá United

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

Tveir leikmenn Manchester United taka út leikbann þegar liðið tekur á móti nýliðum Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á morgun.

Miðjumaðurinn Nemaja Matic og sóknarmaðurinn Marcus Rashford eru báðir í banni vegna rauðra spjalda en Rashord fékk brottvísun í leiknum á móti Burnley og Matic í leiknum gegn Watford.

Manchester United vann báða þessa leiki á útivelli en liðið tapaði síðasta heimaleiknum sínum gegn Tottenham 3:0. Tapi United fyrir nýliðunum á morgun yrði það í fyrsta skipti á þjálfaraferli sínum sem Mourinho tapar tveimur deildarleikjum í röð á heimavelli.

José Mourinho, stjóri United, staðfesti á fréttamannafundi í morgun að varnarmaðurinn Phil Jones sé orðinn heill heilsu en hann hefur verið frá vegna meiðsla í síðustu leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert