Stórleikur á Anfield í vikunni

Leikmenn Liverpool fagna einu af mörkum sínum gegn Southampton á …
Leikmenn Liverpool fagna einu af mörkum sínum gegn Southampton á laugardaginn. AFP

Í vikunni verður spilað í 3. umferð ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu og það verður sannkallaður stórleikur á Anfield.

Liverpool tekur á móti Chelsea í stórleik 3. umferðarinnar en liðin hafa byrjað tímabilið vel. Liverpool trónir á toppi úrvalsdeildarinnar með 18 stig og hefur unnið alla sex leiki sína en Chelsea er í 2.-3. sætinu með 16 stig. Liðin eigast svo við í deildinni á Stamford Bridge síðdegis á laugardaginn.

Helstu leikir í 3. umferðinni eru:

Þriðjudagur:

18.45 Burton - Burnley
18.45 Oxford - Manchester City
18.45 Milwall - Fulham
18.45 Wolves - Leicester
19.00 WBA - Crystal Palace
19.00 Manchester United - Derby

Miðvikudagur:

18.45 Arsenal - Brentford
18.45 West Ham - Macclesfield
18.45  Liverpool - Chelsea
19.00 Tottenham - Watford

Fimmtudagur:

18.45 Everton - Southampton

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert