Mesut Özil var svo sannarlega maður leiksins þegar Arsenal vann 3:1 sigur gegn Leicester í lokaleik 9. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Emirates Stadium í kvöld.
Özil, sem bar fyrirliðabandið hjá „skyttunum“ í kvöld, skoraði eitt mark og lagði upp tvö og sýndi mögnuð tilþrif í leiknum.
Özil er orðinn markahæsti Þjóðverjinn í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi en mark hans í kvöld var það 30. í deildinni og það þriðja í síðustu fjórum leikjum Lundúnaliðsins. Uwe Rosler og Jürgen Klinsmann skoruðu báðir 29 mörk í ensku úrvalsdeildinni.