Fábregas sterklega orðaður við AC Milan

Cesc Fábregas.
Cesc Fábregas. AFP

Ítalska knattspyrnuliðið AC Milan er í viðræðum við Chelsea um kaup á spænska miðjumanninum Cesc Fábregas en Mílanóliðið vill fá Spánverjann til liðs við sig í janúar.

Fábregas, sem er 31 árs gamall, hefur aðeins spilað þrjá af 12 leikjum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og virðist ekki vera inni í framtíðarplönum ítalska knattspyrnustjórans Maurizio Sarri, sem tók við stjórastarfinu hjá Lundúnaliðinu í sumar.

Samningur Fábregas við Chelsea rennur út í sumar en hann kom til liðsins frá Barcelona fyrir fjórum árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert