Gascoigne enn í vandræðum

Paul Gascoigne.
Paul Gascoigne. AFP

Paul Gascoigne, fyrrum landsliðsmaður Englendinga í knattspyrnu, hefur verið kærður fyrir kynferðislegt áreiti gegn konu en hann var handtekinn á lestarstöð í Durham í norðaustur Englandi þann 20. ágúst.

Gascoigne á að mæta fyrir rétt þann 11. desember en þessi fyrrum leikmaður Newcastle, Tottenham og Lazio, sem lék 57 leiki fyrir England, hefur barist við bakkus frá því hann lagði skóna á hilluna árið 2004 og hefur ítrekað lent í vandræðum vegna ölvunar og heilsubrests.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert