Elneny á förum frá Arsenal

Mohamed Elneny í leik með Arsenal.
Mohamed Elneny í leik með Arsenal. AFP

Enskir fjölmiðlar telja nokkuð víst að Arsenal losi sig við egypska miðjumanninn Mohamed Elneny þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar.

Elneny hefur ekkert komið við sögu með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og fram kemur í enska blaðinu Mirror að Arsenal sé reiðubúið að selja hann fyrir 15 milljónir punda.

Egyptinn, sem er 26 ára gamall, gekk í raðir Arsenal frá svissneska liðinu Basel. Hann hefur spilað 38 deildarleiki með Arsenal frá því hann kom til liðsins en hefur ekki tekist að skora fyrir Lundúnaliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert