Liverpool blandar sér í baráttuna um Jovic

Luka Jovic fagnar marki með Eintracht Frankfurt.
Luka Jovic fagnar marki með Eintracht Frankfurt. AFP

Liverpool hefur blandað sér í baráttuna um að fá framherjann Luka Jovic til liðs við sig frá þýska liðinu Eintracht Frankfurt.

Jovic er 20 ára gamall serbneskur landsliðsmaður sem er markahæstur í þýsku Bundesligunni en hann hefur skorað 9 mörk í þeim sex leikjum sem hann hefur byrjað inni á á þessu tímabili.

Þýska blaði Bild greinir frá því að Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool hafi beint sjónum sínum að Jovic en lið á borð við Bayern München og Barcelona eru einnig sögð áhugasöm um að fá Serbann til liðs við sig. Hann er í eigu portúgalska liðsins Benfica en var lánaður til Eintracht Frankfurt í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert