Liverpool gæti fengið leikmann til baka

Ben Woodburn er samningsbundinn Liverpool.
Ben Woodburn er samningsbundinn Liverpool. AFP

Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Liverpool íhuga að fá velska framherjann Ben Woodburn til baka úr láni frá Sheffield United í B-deildinni í janúar. Woodburn var ekki í leikmannahópi liðsins gegn grönnunum í Sheffield Wednesday fyrir landsleikjahléið. 

Woodburn er yngsti markaskorari í sögu Liverpool og talinn einn efnilegasti leikmaður félagsins. Hann hefur hins vegar lítið fengið að spreyta sig hjá Sheffield-liðinu og aðeins spilað 28 mínútur síðan í ágúst. 

Liverpool er ekki sátt við gang mála og vilja forráðamenn félagsins sjá hann fá fleiri tækifæri. Hann gæti verið lánaður í annað félag í janúar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert