Meiðslavandræði hjá United

Frá æfingu Manchester United.
Frá æfingu Manchester United. AFP

Mikið er um meiðsli í herbúðum Manchester United en liðið tekur á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Óvíst er um þátttöku sex leikmanna United í leiknum gegn Palace en þeir Anthony Martial, Paul Pogba, Romelu Lukaku, Marouane Fellaini, Victor Lindelöf og Marcus Rashford eiga allir við meiðsli að stríða. 

Mestar líkur eru taldar á að Fellaini og Pogba verði búnir að hrista af sér meiðslin í tæka tíð fyrir leikinn á laugardaginn.

Það er hins vegar ljóst að vinstri bakvörðurinn Luke Shaw verður fjarri góðu gamni en hann tekur út leikbann.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert