Robertson fór næstum til Stoke

Andy Robertson er búinn að spila afar vel.
Andy Robertson er búinn að spila afar vel. AFP

Skoski knattspyrnumaðurinn Andy Robertson var næstum genginn í raðir Stoke City frá Hull sumarið 2017. Að lokum gekk hann hins vegar í raðir Liverpool, þar sem hann er búinn að vera afar mikilvægur að undanförnu. 

„Stoke hafði áhuga á mér og við Mark Huges spjölluðum saman. Ég hafði áhuga á að fara til Stoke, sem endaði í tíu efstu sætunum tímabilið á undan,“ sagði Robertson í samtali við Open Goal. 

„Um leið og ég heyrði af áhuga Liverpool var ég hins vegar fljótur að segja já og ekki sé ég eftir því. Ég fékk tækifærið þegar Alberto Moreno meiddist og sem betur fer hefur gengið vel,“ bætti hann við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert