Fjögur ensk lið komin áfram

Leikmenn Tottenham fagna því að vera komnir áfram í 16-liða …
Leikmenn Tottenham fagna því að vera komnir áfram í 16-liða úrslitin í kvöld. AFP

Fjögur ensk lið verða í pottinum þegar dregið verður til 16-liða úrslitanna í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu.

Liverpool og Tottenham tryggðu sér farseðilinn í 16-liða úrslitin í kvöld en áður höfðu Manchester City og Manchester United tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum.

15 lið eru komin áfram í 16-liða úrslitin en þau eru:

Liverpool
Tottenham
Manchester City
Manchester United
Barcelona
Dortmund
Atletíco Madrid
Paris SG
Porto
Schalke
Bayern München
Ajax
Roma
Juventus
Real Madrid

Shakhtar Donetsk og Lyon mætast í kvöld í úrslitaleik um að komast áfram. Shakhtar þarf sigur til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert