Enski landsliðsmaðurinn Raheem Sterling hefur verið valinn leikmaður mánaðarins fyrir frammistöðu sína með Manchester City í nóvember.
Sterling skoraði þrjú mörk og lagði upp önnur þrjú fyrir ensku meistarana í þremur leikjum í nóvember.
Sterling er 24 ára og er þetta í annað sinn á ferlinum sem hann er heiðraður með þessum hætti. Í fyrra skiptið var það fyrir frammistöðu sína með City í ágúst 2016.